Fréttir

Ný þjónusta hjá Bjargráði:

Listmeðferð fyrir börn og unglinga

Börn geta orðið vitni að því þegar foreldri þeirra eða annar nákominn aðstandandi er handtekinn og getur slík reynsla haft alvarleg og langvarandi áhrif á líðan þeirra. Hún getur valdið gríðarlegu áfalli og haft áhrif á öryggiskennd, tilfinningalega líðan og samskipti barnsins við aðra. Tíminn sem líður frá handtöku og þar til afplánun hefst getur einnig verið flókinn og erfiður fyrir börn. Foreldrar reyna oft að hlífa börnum sínum við erfiðum upplýsingum og stundum vita börnin ekki hvað er að gerast eða hvað fram undan er. Börn eru hins vegar næm og skynja oft að eitthvað sé ekki eins og það á að vera, jafnvel þótt þeim sé ekki sagt frá aðstæðum eða þær útskýrðar fyrir þeim. Börn og unglingar sem eiga foreldri eða annan nákominn aðstandanda í afplánun eiga oft mjög erfitt með að ræða aðstæður sínar við aðra. Málefnið getur verið viðkvæmt og mörg börn upplifa að best sé að tala sem minnst um það. Þau geta því borið tilfinningar sínar ein með sér og fengið ekki þann stuðning sem þau þurfa. Skömm, sektarkennd, ótti og vanlíðan geta haft mikil áhrif á tilfinningar og hugarástand barnsins. Sum börn óttast einnig viðbrögð annarra eða að verða dæmd vegna aðstæðna sem þau hafa enga stjórn á. Þá getur verið erfitt að ræða málin jafnvel við þá sem standa þeim næst, sérstaklega þegar erfiðar og flóknar tilfinningar eru til staðar. Það er mikilvægt að börn og unglingar í þessum aðstæðum fái öruggt rými þar sem þau geta tjáð tilfinningar sínar og spurt spurninga án þess að upplifa skömm eða fordóma. Þau þurfa að vita að þau bera ekki ábyrgð á gjörðum annarra og að það sé eðlilegt að finna fyrir ólíkum og stundum mótsagnakenndum tilfinningum.

Hvað er listmeðferð?

Listmeðferð er meðferðarúrræði sem byggist á sálfræðilegum kenningum og er myndræn tjáning notuð markvisst til að vinna úr reynslu, upplifun og líðan einstaklingsins. Í listmeðferð er einstaklingnum veitt tækifæri til að tjá tilfinningar sínar og hugarheim með litum, leir og öðru myndlistarefni í öruggu umhverfi undir umsjón listmeðferðarfræðings.  
Í listmeðferð er leitast við að skapa afslappað andrúmsloft sem veitir barninu öryggi, þar sem svo miklu skiptir að upp byggist traust barnins til listmeðferðarfræðingsins. Í listmeðferðinni fær barnið skýr skilaboð um að það sem það skapar skipti máli. Í því ferli fer fram mikil vinna, ná þarf fram frumkvæði barnsins á þeim hraða er því hentar eftir þeim leiðum sem barnið velur. Þannig lærir barnið að þekkja sjálft sig, styrkleika sína og veikleika.   Listmeðferð er runnin frá stofni sállækninga (psychodynamic) og kenninga um listsköpunarferlið. Í listmeðferð er lögð áhersla á sköpun sem er öllum eiginleg og er leitast er við að efla hana. Í vinnuferlinu er ekkert rétt eða rangt og því er engin þörf á færni í myndsköpun. Takmarkið er ekki að gera listaverk eða „fallega mynd“ heldur er sköpunarferlið aðalatriðið.    

Ástæður tilvísana í listmeðferð: Ýmsar ástæður geta legið að baki tilvísana í listmeðferð. Sem dæmi má nefna tímabundna eða langtíma erfiðleika, svo sem líkamlega sjúkdóma, fatlanir, þunglyndi og depurð, kvíða, sorg og missi, óróleika og samskiptaörðugleika eða einangrun og einsemd.   

Til að panta tíma í listmeðferð hafið samband við Hörpu hjá Bjargráði, harpah@kirkjan.is eða 7819905.
Leit